Skilmálar
Notkunarreglur 2fyrir1.is
- Skráningin gildir aðeins fyrir þig ásamt einum gesti, nema annað sé tekið fram. Tilboðin gilda t.d. ekki 4 fyrir 2 o.s.frv.
- Þegar þú kemur á staðinn staðfestir þú aðildina að 2fyrir1.is með því að sýna persónuskilríki og afhenda útprentun. Þetta er mjög mikilvægt svo að ekki verði útbúinn reikningur miðað við fullt verð. Það getur verið erfitt að breyta reikningi eftir á, sérstaklega á veitingahúsum.
- Mismunandi reglur gilda um hversu oft þú getur nýtt þér tilboð frá samstarfsaðilum 2fyrir1.is. Reglurnar koma skýrt fram á útprentun tilboðs hverju sinni.
- Tilgreindur afsláttur miðast við fullt verð á þjónustu eða vöru. Enginn afsláttur er veittur af sértilboðum. Á veitingastöðum miðast afsláttur við fastan matseðil (a la carte). Greitt er fyrir dýrari máltíðina en sú ódýrari er endurgjaldslaus. Drykkir greiðast að fullu nema annað sé tekið sérstaklega fram. Þegar tveir fullorðnir borða saman ásamt börnum er ódýrari fullorðinsmáltíðin endurgjaldslaus en ekki barnamáltíðin.
- Aðild þín gildir á meðan þú hefur ekki afskráð þig úr 2fyrir1.is klúbbnum.
- Öll misnotkun á reglum 2fyrir1.is getur orðið til þess að meðlimur í klúbbnum verði afskráður fyrirvaralaust.
- Allt innihald þessa vefs er uppfært miðað við þá samninga sem í gildi eru við síðustu uppfærslu. Upp geta komið vandamál hjá samstarfsaðilum 2fyrir1.is sem verða til þess að meðlimir fá ekki þá þjónustu sem í boði er. Þetta getur t.d. falist í breyttu húsnæði, starfsmannabreytingum, rekstrarstöðvun, eigendaskiptum eða öðrum þáttum sem verða til þess að þjónustan er ekki lengur fyrir hendi. 2fyrir1.is er ekki ábyrgt gagnvart slíkum ófyrirséðum breytingum sem valda klúbbmeðlimum óþægindum.
- Meðlimur í 2fyrir1.is sem verður fyrir óþægindum er vinsamlegast beðinn um að tilkynna það sem allra fyrst, enda mun 2fyrir1.is gera allt sem í okkar valdi stendur til að aðstoða við úrlausn mála. Þetta er mjög mikilvægt svo að við getum leiðrétt þau ófyrirsjáanlegu vandamál sem upp geta komið.
Reglur settar inn 12. desember 2008