Um 2fyrir1.is
2fyrir1.is er afsláttarklúbbur sem eingöngu er á internetinu.
Það kostar ekkert fyrir einstaklinga að gerast klúbbsmeðlimur á 2fyrir1.is.
Vefurinn 2fyrir1.is opnaði 12.12.2008.
2fyrir1.is er afsláttarklúbbur sem eingöngu er á internetinu. Vefurinn er síkvikur og skemmtilegur því að samstarfsaðilar geta sjálfir stjórnað eigin skráningum og sett inn ný og spennandi tilboð fyrirvaralaust. gerast samstarfsaðili
Meðmæli
Argentína Steikhús hefur verið í samstarfi við 2fyrir1.is frá upphafi. Við getum vottað að þessir samningar hafa reynst okkur mjög vel jafnframt sem sameiginlegir viðskiptavinir okkar hafa lýst mikilli ánægju með þessi tilboð. Allir samningar við Gunnar Andra hafa staðist 100 % og hann hefur leyst öll þau mál sem hefur þurft að framkvæma í sambandi við auglýsingaborða og uppsetningu með miklum sóma.
Kristján Sigfússon
Framkvæmdasjóri
___________________
Við eigendur veitingastaðarins energia í Smáralind höfum notfært okkur síðuna 2fyrir1 s.l. þrjá mánuði eða síðan í byrjun febr. Þetta var svona með hálfum huga sem við fórum út í þetta, þar sem þetta er kostnaðarsamt,en þar sem við getum stjórnað þessu alfarið hvaða tíma og daga þessi tilboð eru í gangi fannst okkur þetta spennandi. Við erum ánægð með árangurinn, höfum séð fullt af nýjum viðskiptavinum og þá er þetta að virka, svo við getum eindregið mælt með þessu fyrirkomulagi.
Guðný og Jón
energia Smáralind
____________________
Við nýttum okkur þjónustu 2fyrir1.is í vor. Viðbrögðin voru frábær. Veitingastaðurinn tók á móti mörgum nýjum ánægðum gestum sem nýttu sér tilboðið og heimsóknir inná heimasíðuna okkar jukust til muna.
Róbert Ólafsson GM
Fjöruborðið Restaurant.
____________________
Ég byrjaði að nota 2fyrir1 vefin í haust og hef fengið magnaðar viðtökur og aukin viðskipti út á samstarfið. Ég mæli eindregið með að fyrirtæki sem vilja kynna fyrirtækið sitt á nýstárlegan hátt, noti 2fyrir1 vefin.
Konráð Sigurðsson
Framkvæmdasjóri Xprent
____________________
2 fyrir 1.is hefur gengið vonum framar. Fjöldi nýrra viðskiptavina í hverri viku, sem koma aftur og aftur. Allt staðist sem lofað var og meira til. 2fyrir1.is fær mín bestu meðmæli.
Aðalsteinn Sigurðsson
Framkvæmdastjóri HA veitinga / Veitingastaðurinn Madonna
__________________________________________________
Ég mæli klárlega með því að hafa tilboð á 2fyrir1.is. Sportlíf hefur nýtt sér tilboð á 2fyrir1.is og skilaði það góðum árangri í beinni sölu og kom vörumerkinu okkar vel á framfæri þar sem mörg þúsund manns skoðuðu tilboðið okkar.
Hallgrímur Andri
Sportlíf
________________
"Ég get óhikað mælt með 2fyrir1.is þar sem öll samskipti og þjónusta er
til fyrirmyndar. Þetta var ný nálgun og forvitnileg en blandar saman
skemmtilegum vinklum í markaðs- og kynningarmálum sem annars væri erfitt
að ná fram. Klárlega tækifæri fyrir minni fyrirtæki sem vilja kynna sig
fyrir með markvissum hætti fyrir virkum viðskiptahópi."
Kolbeinn
Betra nám - Kjarna
------------------------------
2fyrir1.is
Laugavegi 8
101 Reykjavík
Sími: 615 1881 samstarf@2fyrir1.is


